Tónafljóð

Ævintýralega skemmtilegur söng- og leikhópur!

Markmið hópsins er að breiða út gleðibros með fallegum röddunum, litríkum kjólum og leikrænum tilþrifum.

Bóka Tónafljóð

Dagný, Elísa, Hanna, Rebekka og Selma

Tónafljóðin fimm í litríkum kjólum með ævintýrahatta

Söngleikir
fyrir börn

Fjölhæf fljóð

Tónafljóð eru fjölhæfur sönghópur og bjóða upp á mismunandi söngskemmtanir. Fljóðin eru líklegast þekktust fyrir barnaatriði en þær syngja einnig íslenskar perlur og partýlög til að koma mannskapnum í gírinn. Svo má ekki gleyma jólaatriðum fyrir bæði börn og fullorðna!

Tónafljóð í risastórri skel á sviði teiknimyndasöngleiksins
25 mínútur

Teiknimyndasöngleikur

Vinsælu Disney lögin saman í söngleik!

Við leikum, dönsum og syngjum lög úr vinsælustu teiknimyndum barnanna eins og Frozen, Toy Story, Aladdin, Encanto og Lion King. Litríkir búningar, fallegar raddanir, dans og leikgleði einkenna þessa frábæru fjölskylduskemmtun.

Við hönnuðum söngleikinn í samvinnu við börn, með því að prófa okkur áfram og fylgjast með því hvað börnunum finnst skemmtilegt að sjá og heyra. Við bregðum okkur í hlutverk ljóna, krabba, fiska og allskonar skemmtilegra persóna úr teiknimyndum.

Meira á barnaskemmtun.is
Tónafljóð inni í snjókúlu umkringd jólatrjám
25 mínútur

Jólasöngleikur

Töfrandi jólasýning

Jólasöngleikurinn inniheldur öll vinsælustu jólalögin sem allir ættu að þekkja, þar á meðal Ég hlakka svo til, Snjókorn falla og Ég sá mömmu kyssa jólasvein. Fallegar raddanir, jólalegir kjólar og leikræn tilþrif þar sem jákvæður boðskapur er í fyrirrúmi.

„Spenningurinn er í hámarki og vinkonurnar geta ekki beðið eftir jólunum. Ein þeirra er farin að missa trúna um að jólin komi nokkurn tímann en vinkonurnar sannfæra hana um það að jólin koma svo sannarlega og hjálpast þær að við að koma henni í rétta jólaskapið.“
  • Íslenskar perlur

    Hógværari hlið Tónafljóða má finna þegar þær syngja falleg íslensk lög sem allir ættu að kannast við, líkt og Vegbúinn, Viltu með mér vaka og Heyr mína bæn. Tónafljóð syngja með ljúfum röddunum í glæsilegum 60's kjólum.

  • Brúðkaup

    Flauelsmjúk brúðkaupslög með fallegum röddunum fyrir stóra daginn.

  • Partýstuð

    Lagasyrpa til að koma öllum í partýstuð og mannskapnum í gírinn.

Fljóðin

Í Tónafljóðum eru fimm söngkonur. Þær eru allar reyndar söngkonur og hafa tekið þátt í fjölmörgum söng- og tónlistarverkefnum í gegnum tíðina. Hópurinn var stofnaður í janúar 2018.

  • Dagný í krabbahatti og bleikum blómakjól

    Dagný

    Dagný Ásta Guðbrandsdóttir

    Tónlistarkona, förðunarfræðingur og bókhaldsnemi. Hún hefur verið í bransanum lengi og er alltaf syngjandi. Hún elskar háu tónana og er ansi oft uppi á háa C-inu.

  • Elísa í loðhúfu og gulum kjól

    Elísa

    Elísa Hildur Þórðardóttir

    Tónlistarkona, gítarleikari, upptökustjóri og mannfræðingur. Hún hefur m.a. gefið út helling af lögum með hljómsveitinni Bergmál og elskar að skapa lag frá grunni.

  • Hanna í gulum hatti og dökkum blómakjól

    Hanna

    Hanna Einarsdóttir

    Tónlistarkona, leikskólakennari og talmeinafræðingur. Hún hefur mikla ástríðu fyrir tónlist og barnamenningu og mikla reynslu af að vinna með börnum. Hún er m.a. ein af þeim heppnu íslendingum sem er atvinnu nammismakkari hjá Nóa Siríus!

  • Rebekka með bleika rós í hárinu og blómakjól

    Rebekka

    Rebekka Sif Stefánsdóttir

    Tónlistarkona, söngkennari og rithöfundur. Hún hefur m.a. gefið út plötuna Wondering, er menntuð sem kennari hjá Complete Vocal Institute, með master í ritlist og búin að gefa út 4 bækur.

  • Selma í páfagaukshatti og ljósbláum kjól

    Selma

    Selma Hafsteinsdóttir

    Tónlistarkona, hárgreiðslukona og stjórnandi hlaðvarps. Hún hefur m.a. gefið út ógrynni af lögum með hljómsveitinni Bergmál. Hún er gleðigjafi og mikill húmoristi sem vill hafa stuð í kringum sig.

Sjáðu fljóðin

  • Myndband frá Tónafljóð
  • Myndband frá Tónafljóð
  • Myndband frá Tónafljóð
  • Myndband frá Tónafljóð

Umsagnir

  • Skemmtilegur og upplífgandi sönghópur. Þær eru með húmor, gleði, útgeislun, fallegar raddanir og tilvaldar í alls kyns skemmtanir. Ég hef fengið þær til að syngja fyrir stóran barnahóp og þær hafa alltaf skapað einstaklega góða stemmingu.
    Díana Sjöfn Jóhannsdóttir
  • Frábær skemmtun fyrir alla!! Þær hafa komið að skemmta nokkrum sinnum á mínum leikskóla og slegið í gegn í öll skiptin!
    Kristín Guðjónsdóttir
  • Sáum þær á 17. júní skemmtun og stelpan mín elskaði Disney-syrpuna.
    Berglind Ósk Þórólfsdóttir
  • Hef séð bæði barnaskemmtunina og jólasöngleikinn, báðar sýningarnar slógu í gegn! Mæli mjög mikið með þeim!
    Benedikt Sigurleifsson
  • Svo dásamlegar og skemmtilegar. Mússíkalskar og professional. Mæli með þessum stelpum :)
    Guðrún Árný Karlsdóttir

Bóka Tónafljóð

Tónafljóðin eru alltaf snögg að svara skilaboðum og beiðnum um bókanir á allskyns skemmtanir.